Stefán Haukur Jóhannesson, sem verið hefur sendiherra í Brussel frá árinu 2005, mun þann 15. janúar nk. flytjast heim til starfa í utanríkisráðuneytinu.

Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins en Stefán Haukur heldur áfram að gegna starfi aðalsamningamanns Íslands í aðildarviðræðum við ESB.

Þórir Ibsen, sem verið hefur sendiherra í París frá árinu 2009, verður sendiherra Íslands í Brussel frá 15. janúar nk. með fyrirvara um samþykki belgískra stjórnvalda.

Þú mun Berglind Ásgeirsdóttir, sem verið hefur í leyfi frá embætti sendiherra í utanríkisþjónustunni frá árinu 2007, taka við sem sendiherra Íslands í París.

Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að flytja Önnu Jóhannsdóttur og Högna S. Kristjánsson úr embættum skrifstofustjóra í utanríkisþjónustunni í embætti sendiherra frá og með 1. janúar 2011.