Stefán Helgi Jónsson hefur tekið við starfi sjóðstjóra hjá Júpíter rekstrarfélagi. Þetta kemur fram í frétt á vef fyrirtækisins.

Áður starfaði Stefán sem verðbréfamiðlari hjá MP banka. Hann hefur starfað á fjármálamarkaði síðan 2004 við fjárstýringu, eignastýringu og verðbréfamiðlun.

Stefán er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, M.Sc. gráðu í fjármálum frá Heriot-Watt University og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.