Stefán E. Sigurðsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Advania. Stefán starfaði áður sem Senior Director of Finance hjá CCP en þar hóf hann störf árið 2010. Hjá CCP leiddi Stefán fjármáladeildir fyrirtækisins á heimsvísu og hafði yfirumsjón með samstæðuuppgjöri félagsins, sjóðstýringu, fjárfestatengslum og samskiptum við skatta-og eftirlitsstofnanir í þeim löndum sem félagið er með starfsemi.

Á árunum 2003-2010 starfaði Stefán sem Audit Manager hjá Eide Bailly í Phoenix, Arizona. Þar leiddi hann endurskoðunarteymi og endurskoðaði fyrirtæki í Arizona, Californiu, Colorado, New Mexico og Texas. Þar á meðal voru framleiðslu- og þjónustufyrirtæki, borgir og sveitafélög, orkuveitur, tryggingafélög og fyrirtækjakeðjur.

Stefán útskrifaðist með B.S. í Accountancy frá Arizona State University árið 2003 og varð löggiltur endurskoðandi, CPA (Certified Public Accountant) árið 2006.

Hann tekur við starfinu af Jóhanni Þór Jónssyni, sem tekur við nýju starfi sem forstöðumaður viðskiptaþróunar og rekstrar fyrirtækisins. Þessi nýja staða tilheyrir skrifstofu forstjóra. Jóhann Þór mun sjá um eftirfylgni og samræmingu rekstrarverkefna og þjónustu hjá Advania, bæði á Íslandi og erlendis.

Jóhann Þór hefur gengt stöðu fjármálastjóra Advania frá árinu 2009 þegar vinna við samþættingu og sameiningu þeirra félaga sem nú mynda Advania hófst fyrir alvöru. Áður, eða frá árunum 2004-2009, starfaði Jóhann Þór við viðskiptaþróun og fjármálastjórn hjá Kögun og hjá Eimskip frá 1995-2004. Jóhann Þór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.