Stefán Ragnar Guðjónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri innkaupasviðs Samkaupa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Miklar breytingar hafa verið gerðar hjá Samkaupum en nú munu verslanir Samkaupa um allt land bera nafnið Kjörbúðin.

Hann er menntaður viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og stundar í dag MBA nám við Stirling University í Skotlandi.

Stefán hóf ungur störf sem almennur starfsmaður í verslunum Samkaupa, hann varð síðar verslunarstjóri og loks rekstrarstjóri. Stefán hefur verið forstöðumaður innkaupa- og markaðssviðs Samkaupa síðan árið 2007.