Stefán Svavarsson hefur verið ráðinn í starf aðalendurskoðanda Seðlabanka Íslands og hefur hann störf 1. nóvember næstkomandi, segir í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum.

Samkvæmt lögum ræður bankaráð aðalendurskoðanda bankans og heyrir hann undir það. Stefán hefur undanfarið gegnt dósentsstöðu við Háskólann í Reykjavík, en var áður dósent við Háskóla Íslands.

Í tilkynningu Seðlabankans segir að Stefán þekkir vel til starfsemi Seðlabankans því hann var um langt árabil ráðherraskipaður ytri endurskoðandi bankans á grundvelli fyrri laga um bankann