Stefanía Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar en hún starfaði áður sem verkefnastjóri viðburða á markaðssviði Háskólans í Reykjavík.

Stefanía hefur þegar hafið störf með þingflokki Viðreisnar. Undanfarin ár hefur Stefanía starfað við viðburðarstjórnun, markaðsmál og ferðaþjónustu.

Stefanía var kosningastjóri Viðreisnar í nýliðnum kosningum og einnig var hún í kosningastjórn Guðna Th. Jóhannessonar, núverandi forseta Íslands.

Stefanía útskrifaðist með BA gráðu í listrænni viðburðastjórnun árið 2011 frá Rose Bruford College í London, þar sem hún var fyrst erlendra nema í skólanum kosin forseti stúdentaráðs skólans.