Allir kjörnir fulltrúar Kópavogsbæjar samþykktu í gær fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar, en hún var unnin í samvinnu allra flokka í bæjarstjórninni, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ.

Verður A-hluti bæjarsjóðs rekinn með 122 milljóna rekstrarafgangi á næsta ári samkvæmt áætluninni og er stefnt að því að samstæða Kópavogsbæjar verði rekin með 290 milljón króna rekstrarafgangi á árinu.

Jafnframt er áætlað að skuldahlutfall bæjarins muni lækka umtalsvert og hraðar en aðlögunaráætlunin gerði ráð fyrir, en það verði komið niður í um 140% í árslok 2017, sem er vel undir hinu lögboðna 150% hlutfalli.

Unnin í samvinnu allra bæjarfulltrúa

„Fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir árið 2017 er unnin í samvinnu allra bæjarfulltrúa. Þetta verklag endurspeglar þann skilning á fjármálum bæjarins að allir kjörnir fulltrúar beri þar ábyrgð,“ segir í bókun bæjarstjórnar.

„Þrátt fyrir  þessa niðurstöðu hafa flokkarnir fimm ólíkar áherslur og áætlunin breytir ekki þeirri staðreynd. Hagsmunir bæjarbúa eru að allir þeir fulltrúar sem þeir kusu komi að þessari vinnu og í þeirri trú er fjárhagsáætlunin unnin. Bæjarfulltrúar þakka starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra framlag til gerðar fjárhagsáætlunarinnar.“