Umsjónaraðilar hátt í 80% af íslenskum fjármálamarkaði undirrituðu í gær „Viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar“ ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Landssamtök lífeyrissjóða (LL) og Forsætisráðuneytið unnu að mótun hennar í víðtæku samráði við fulltrúa helstu aðila á fjármálamarkaði.

Æðstu stjórnendur ólíkra fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, banka, sparisjóða, vátryggingafélaga og fjárfestingasjóða undirrituðu viljayfirlýsinguna rafrænt. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra undirritaði hana fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar á ríkisstjórnarfundi í Ráðherrabústaðinum í gær.

Viljayfirlýsingin er sögð „einstakt framtak einkaaðila og stjórnvalda á fordæmalausum tímum“. Með því að nýta fjármagn með markvissum aðgerðum sé hægt að viðhalda sjálfbærri þróun og á sama tíma að efla samkeppnishæfni þjóða og framtíð komandi kynslóða.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að tekið verður tillit til alþjóðlegra skuldbindinga Íslands og þeirra viðmiða sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér. Eru þar nefnd markmið um kolefnishlutlaust Ísland eigi síðar en árið 2040, markmið Parísarsamkomulagsins um að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda þannig að hlýnun jarðar fari ekki yfir 1,5 gráður og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun 2030.

Þá sé eftir atvikum litið til ESG/UFS, meginreglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi (UN PRB), meginreglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (UN PRI) og UN Global Compact.