Icelandair stefnir að því að ljúka samkomulagi alla hagaðila í júlímánuði og mun Icelandair Group hefja hlutafjárútboð í ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Fari svo að samningaviðræður skili ekki tilætluðum árangri, mun félagið þurfa að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu án aðkomu íslenskra stjórnvalda. Slíkt ferli gæti tekið allt að tólf mánuði og á meðan á því stæði þyrfti félagið að fresta öllum greiðslum til fjármögnunaraðila félagsins. Eins og áður hefur verið tilkynnt, er samkomulag við helstu hagaðila Icelandair Group forsenda þess að félagið geti hafið fyrirhugað hlutafjárútboð og lokið við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Viðræður hafa staðið yfir undanfarnar vikur og félagið stefndi að því að samkomulag við helstu aðila lægi fyrir í dag, 29. júní," segir í tilkynningunni.

Jafnframt segir að félagið hafi nú þegar náð góðum árangri í viðræðum við marga þessara aðila. Nýir langtímasamningar hafi til að mynda verið undirritaðir við stéttarfélög flugmanna, flugfreyja og flugþjóna sem og flugvirkja. Þá vinnur félagið nú með íslenskum stjórnvöldum, Íslandsbanka og Landsbankanum við útfærslu ríkisábyrgðar á láni til félagsins. Lánafyrirgreiðsla íslenskra stjórnvalda verður þó meðal annars háð samkomulagi við kröfuhafa og að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár.

„Icelandair Group hefur fengið jákvæð viðbrögð frá meginþorra kröfuhafa sem hafa lýst yfir vilja til að vinna með félaginu í gegnum það ferli sem nú stendur yfir. Samningaviðræður við nokkra lykilaðila standa aftur á móti enn yfir. Á meðal þeirra eru flugvélaleigusalar og færsluhirðir. Félagið á jafnframt enn í samningaviðræðum við Boeing um frekari bætur vegna kyrrsetningar MAX vélanna og afhendingar véla sem enn eru útistandandi samkvæmt samningi. Samningaviðræður við þessa aðila hafa þokast áfram á undanförnum vikum og gætu skilað niðurstöðu á næstu dögum haldi viðræðurnar áfram á uppbyggilegum nótum."

Handbært fé Icelandair Group er nú um 150 milljónir Bandaríkjadala (tæplega 21 milljarður íslenskra króna), sem  er umfram þriggja mánaða rekstrarkostnað miðað við núverandi aðstæður.

Það er mat Icelandair Group að fjárhagsleg endurskipulagning sem byggir á gagnkvæmum samningum við kröfuhafa sé ákjósanlegasta leið félagsins til að tryggja hagsmuni allra aðila, þar með talið hluthafa, fjármögnunaraðila, birgja, viðskiptavina og starfsfólks.