Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir hagnaðist um tæplega 1,7 milljarða króna á síðasta ári samanborið við 741,3 milljónir árið áður. Samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu er afkoma síðasta árs sú besta í rúman áratug.

Umsýslu- og árangurstengdar þóknanir námu 3,1 milljörðum króna og jukust um tæplega 1,1 milljarð milli ára. Fjármunatekjur námu tæplega 163 milljónum en voru 205,5 milljónir árið áður. Hreinar rekstrartekjur námu 3,3 milljörðum en voru 2 milljarðar árið 2016. Jukust hreinar rekstrartekjur því um 65,5% milli ára.

Rekstrargjöld námu 1,2 milljörðum og jukust um tæp 8%. Þar af nam launakostnaður 611,8 milljónum.

Eignir Stefnir námu 4,2 milljörðum króna í árslok en voru 3,2 milljarðar í árslok 2016. Eigið fé nam rúmum 3,2 milljörðum og var eiginfjárhlutfall 81%. Eignir í stýringu námu 347 milljörðum króna í lok árs 2017 en voru 408 milljarðar í árslok 2016. Stefnir er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins miðað við eignir í stýringu.

Á árinu 2017 voru gjaldfærðar 84,4 milljónir vegna kaupaukakerfis að launatengdum gjöldum meðtöldum. Greiðslu 40% kaupaukans er frestað um þrjú ár í samræmi við reglur FME. Í lok árs var uppsöfnuð skuldbinding frá árinu 2014 vegna kaupaukakerfis 160,4 milljónir.

Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, segir afkomu félagsins hafa verið mjög góða á liðnu ári.

„Félagið er fjárhagslega sterkt og hefur fjölbreytt úrval sjóða í rekstri. Á síðasta ári náðust mikilvægir áfangar í stærri verkefnum á sviði framtaksfjárfestinga og félagið nýtur góðs af stórgóðum árangri þeirra fjárfestingarverkefna. Áhersla félagsins á uppbyggingu sérhæfðra fjárfestinga á síðustu árum skilar sér í fjölbreyttari tekjustoðum og hærri tekjuframlegð.

Vegna innleiðingar á nýju regluverki á fjármálamarkaði, sem nefnist MiFID II hefur töluverð breyting orðið á meðferð rekstrartekna tengdra aðila s.s. móðurfélags og skýrir það einnig auknar tekjur félagsins. Það er einnig ánægjulegt að sjá að hlutdeildarskírteinishöfum fjölgar á milli ára og eru þeir nú tæplega ellefu þúsund talsins. Einstaklingum sem nýta sér sjóði Stefnis til reglubundins sparnaðar er sífellt að fjölga. Ljóst er að aukin áhersla á rafrænar dreifileiðir, aðgengi og ítarleg upplýsingagjöf á heimasíðu Stefnis hefur ýtt undir áhuga á sjóðum félagsins. Ég er afskaplega stoltur af árangri félagsins og þeirri góðu vinnu sem starfsfólk hefur skilað á síðustu misserum.“

Stefnir hefur verið leiðandi í framtaksfjárfestingum og sérhæfðum afurðum á Íslandi um árabil. Framtakssjóðurinn SÍA III lauk annarri fjárfestingu sinni með kaupum á 70% hlut í Gámaþjónustunni hf. og SÍA II slhf. afhenti hluthöfum eignarhluti sjóðsins í Skeljungi hf. í nóvember 2017. Þar með lauk fjögurra ára árangursríkri aðkomu sjóðsins að Skeljungi.

Í frétt Stefnis kemur fram að sérstaða Stefnis í stýringu erlendra hlutabréfasjóða sé umtalsverð meðal innlendra fjármálafyrirtækja. Félagið hefur um tveggja áratuga skeið rekið erlenda hlutabréfasjóði með góðum árangri. Eftir sameiningu KMS Global Equity við KF Global Value varð til langstærsti alþjóðlegi hlutabréfasjóður í stýringu innlendra aðila. Stærð sjóðsins í árslok 2017 var 205 m EUR, eða jafngildi 25,4 milljarða ISK. Árangur sjóðsins hefur verið framúrskarandi góður á síðustu árum og sem dæmi um það var ávöxtun sjóðsins 12,1% á árinu 2017, sem er 6,6 prósentustigum umfram ávöxtun heimsvísitölu hlutabréfa (MSCI). Ávöxtun annarra sjóða var í flestum tilvikum viðunandi og með hliðsjón af viðmiðunarvísitölum og samkeppnissjóðum var ávöxtunin í mörgum tilvikum góð.

Stefnir rekur nokkra af stærstu sjóðum landsins meðal blandaðra sjóða og var ávöxtun þeirra á árinu vel viðunandi. Á árinu var stofnaður nýr fjárfestingarjóður, Stefnir – Sparifjársjóður, sem fjárfestir í innlánum, víxlum og styttri skuldabréfum. Viðskiptavinir tóku sjóðnum vel og var stærð hans orðin rúmir 5,4 milljarðar króna í árslok 2017.

Fjórir sjóðir í rekstri Stefnis (Stefnir - ÍS-5, Stefnir - ÍS-15, Stefnir - Samval og Eignaval - Hlutabréf) keyptu nýverið 0,73% hlut í Arion banka.