Vöruskiptin voru hagstæð um 4,8 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Verðmæti útflutnings nam um 51,9 milljörðum króna en verðmæti innflutnings 47,0 milljarðar króna.

Gangi þetta eftir er afgangur af vöruskiptum með minna móti en álíka tölur hafa sjaldan sést eftir hrunið 2008.

Til samanburðar nam afgangur af vöruskiptum 8,7 milljörðum króna í júní í fyrra og rúmum 11,4 milljörðum króna árið 2010.