Vöruskipti voru hagstæð um 12 milljarða króna í janúar, samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í morgun. Gangi það eftir er afgangurinn nálægt efstu mörkum. Í mars í fyrra var hann tæpar 13,8 milljarðar króna og í september tæpir 15,6 milljarðar króna. Afgangur af vöruskiptum hefur ekki áður verið svo mikill.  Í janúar í fyrra nam hann tæpum 7,8 milljörðum króna.

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar nam verðmæti útflutnings tæpum 49,3 milljörðum króna og verðmæti innflutnings 37,2 milljörðum króna.