Gengi hlutabréfa í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands hefur lækkað töluvert í dag. Öll fyrirtækin hafa lækkað nema Vodafone. Bréf í Vodfone hafa hækkað um 1,23% og hafa einnig mest viðskipti verið með bréf í því félagi.

Gengi bréfa í Eimskip hefur lækkað um 2,46% og nemur velta með bréf fyrirtækisins 147 milljónum króna. Össur hefur lækkað um 2,6% en veltan þar er einungis fjórtán milljónir.