Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) hefur endurvakið spá um jólaverslun ársins en verkefnið hefur legið í dvala frá árinu 2016.

Samkvæmt spánni í ár áætlar RSV að velta smásöluverslunar yfir jólamánuðina, nóvember og desember, aukist að nafnvirði um 3,86% frá fyrra ári. Aukningin í fyrra náði miklum hæðum og nam 17,4% þegar samkomu- og ferðatakmarkanir vegna kórónuveirufaraldurins voru allsráðandi.

Áætlað er að heildarvelta smásöluverslana verði í ár tæpir 115 milljarðar króna yfir jólamánuðina. Veltan aukist því um 5 milljarða frá því í fyrra, á breytilegu verðlagi.

Spá RSV gerir ráð fyrir því að verslun yfir jólamánuðina verði 59.715 kr. meiri á mann miðað við aðra mánuði ársins, sem gera rúmlega 238.800 kr. fyrir fjögurra manna fjölskyldu.