Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, hefur stefnt Bjarna Ólafssyni, ritstjóra Viðskiptablaðsins, vegna setningar á forsíðu blaðsins þann 28. ágúst síðastliðinn.

Í fréttinni var greint frá því að Björgólfur Thor Björgólfsson hefði stefnt Róbert og kært til sérstaks saksóknara.

Blaðið stendur við fréttaflutning sinn og rétt er að geta þess að Róbert var gefinn kostur á að tjá sig við vinnslu fréttarinnar og sjónarmiðum beggja aðila var komið á framfæri í frétt blaðsins.