Björgólfur Thor Björgólfsson hefur stefnt Róberti Wessman og Árna Harðarsyni fyrir að hafa á ólögmætan hátt dregið sér fjórar milljónir evra í eigin þágu og skapað honum fjártjón sem samsvarar helming af þeirri fjárhæð. Þetta kemur fram í stefnu Björgólfs Thors á hendur Róberti og Árna sem Viðskiptablaðið hefur undir höndum.

Stefndu í málinu, þeir Róbert og Árni, vísa málatilbúnaði Björgólfs til föðurhúsanna og segja stefnuna „tilefnislausa" og að hún eigi „enga stoð í raunveruleikanum," eins og fram kemur í yfirlýsingu þeirra.

Tóku fjármuni „traustataki“

Í stuttu máli er málavöxtum lýst þannig í stefnu að forstöðumenn Salt Investments hafi fært fjórar milljónir evra sem voru í eigu Mainsee 516 af reikningi Actavis, sem hafði fjármunina í vörslu, inn á reikning Salt Investments, án samráðs eða samþykkis stjórnar eða eigenda Mainsee 516.

Þeir Róbert og Árni hafi síðan nýtt fjármunina í eigin þágu og á sama tíma komið fjármununum frá því að vera fullnustaðir af Glitni banka, sem hafi lánað Mainsee 516 peningana til kaupa á lager af lyfjum. Björgólfur hafi þannig orðið fyrir fjártjóni vegna þess að hann hafði undirgengist sjálfskuldaraábyrgð ásamt Róberti og þurft að standa skil á hærri fjárhæð en ella, ef peningarnir hefðu ekki verið teknir „traustataki" af Róberti eins og segir í stefnunni.

Stefndu í málinu segja umrædda lýsingu ranga, en vilja ekki tjá sig um að hvaða leyti svo sé við fjölmiðla. Róbert Wessman hefur sent frá sér tilkynningu vegna málsins:

Ísfötuáskorun til Björgólfs Thors Björgólfssonar

Enn og aftur fara spunameistarar Björgólfs Thors Björgólfssonar af stað og í þetta skiptið er sett fram tilefnislaus stefna sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Björgólfur Thor er oft hugmyndaríkur þegar kemur að því að spinna sögur og í þetta skiptið fer hann af stað með málatilbúnað sem hefur það eina markmið að þeyta ryki í augu almennings. Þetta virðist einnig vera hluti af stöðugri varnarbaráttu Björgólfs Thors á Íslandi þar sem hann ver skaddað mannorð sitt. Ég vill nota tækifærið og skora á Björgólf Thor  að fara í ísfötubað, enda virðist hann þurfa smá kælingu. Þannig má líka komast hjá því að eyða tíma og fjármunum dómstóla í að fjalla um tilhæfulaus mál.

Þann 25.apríl 2012 gerði ég og Salt investment dómsátt við Björgólf Thor (félög hans) sem fól í sér að máleferlum aðila myndu ljúka.   Allir ættu að þekkja niðurstöðu þeirra mála, þar sem Novator var gert að greiða 40 milljónir evra en innheimta þeirra fjármuna reyndist árangurslaus. Þrátt fyrir að dómsáttin hafi verið Björgólfi Thor mjög hagstæð virðist sem hann sé gjörsamlega friðlaus í þessu máli og er greinilega mikið um að halda áfram deilum við mig.

Ég ætla mér ekki munnhöggvast við Björgólf í fjölmiðlum um þetta mál en það verður áhugavert að mæta honum í dómsal þar sem gerð verður ítarleg grein fyrir málavöxtum og þessum aðdróttunum svarað. Ég á hinsvegar ekki von á öðru en að málinu verði vísað frá, enda tilhæfulaust með öllu.

Róbert Wessman

Ítarlega verður fjallað um málið í Viðskiptablaðinu á morgun, 28. ágúst.