Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur stefnt Samtökum Atvinnulífsins (SA) og fraktflugfélaginu Bláfugli fyrir Félagsdómi vegna meintra ólögmætra uppsagna.

Undir lok síðasta árs var öllum ellefu flugmönnum Bláfugls sem eru í stéttarfélagi sagt upp störfum , í miðjum kjaraviðræðum. Í tilkynningu flugfélagsins samhliða uppsögnunum kom fram að flugmenn FÍA hafi verið „lang-launahæstu“ starfsmenn félagsins. Eftir að uppsagnirnar komu til framkvæmda voru sjálfstætt starfandi flugmenn hjá Bláfugli fjörutíu talsins.

FÍA segir að þessir sjálfstætt starfandi flugmenn séu með öðrum gerviverktakar þar sem flugmaður sem starfi fyrir flugrekenda geti í eðli sínu ekki starfað sem verktaki þar sem hann uppfylli ekki skilyrði um verktöku.

„Niðurstaða Félagsdóms muni skapa mikilvægt fordæmi fyrir því hvort heimilt sé að segja upp launafólki sem starfar eftir kjarasamningi og ráða inn gerviverktaka í staðinn á meira en helmingi lægri launum,“ segir í fréttatilkynningu FÍA.

Félagið segir stöðuna grafalvarlega enda gróflega vegið að lögum og reglum íslensks vinnumarkaðar af hálfu Bláfugls og SA, sem fer með samningsumboðið fyrir hönd Bláfugls.

„Sé þetta látið óátalið af yfirvöldum má af því leiða að heimilt sé að segja upp launafólki landsins sem starfa á grundvelli kjarasamninga og ráða inn gerviverktaka í þeirra stað til að lækka laun verulega og svipta launafólk áunnum réttindum á borð við veikindarétt og orlof,“ segir í lok tilkynningar FÍA.