Stefnt er að því að stjórnvöld gangi frá samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í dag eða í kvöld, samvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Nokkrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar funda nú í Ráðherrabústaðnum. Friðrik Már Baldursson, hagfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík, var rétt í þessu að ganga inn í bústaðinn.