Stefnt er að skrá Sparisjóðabanka Íslands í Kauphöll Íslands, segir Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri, og áherslur verða lagðar á fjárfestingabankastarfsemi.
Bankinn hefur fengið nýtt nafn, sem tilkynnt var í dag, og verður framvegis nefndur Icebank. Bankinn hefur sótt fjármagna á sambankalánamarkað undir því nafni, sem hefur verið notað gagnvart erlendum viðskiptavinum Sparisjóðabankans allt frá stofnun bankans árið1986
?Innanlands mun bankinn nýta sameiginlegt afl sitt og sparisjóðanna til að takast á við stærri fyrirtækjaverkefni,? segir Finnur.
?Erlendis hyggst bankinn starfa með aðilum sem hafa þekkingu og reynslu á viðkomandi markaði. Stefnan er að auka sjálfstæði bankans og stuðla að breiðara eignarhaldi með skráningu í Kauphöll Íslands á næstu misserum.?
Í tilkynningu frá bankanum segir að Icebank verður framvegis öflugur banki á fyrirtækjamarkaði með áherslu á langtímalán og gjaldeyris- og afleiðuviðskipti við fyrirtæki, fagfjárfesta og aðra umsvifamikla viðskiptavini.
Bankinn mun áfram veita sparisjóðunum margvíslega þjónustu en leggja aukna áherslu á að fylgja eftir íslenskum félögum í útrás með ráðgjöf, lánveitingum og þátttöku í fjárfestingum samhliða því að taka þátt í sambankalánum og sérhæfðum lánaverkefnum innanlands og erlendis.
Á síðasta ári nam hagnaður bankans rúmum 2,4 milljörðum króna. Fyrstu sex mánuði þessa árs nam hagnaðurinn 1,8 milljörðum króna sem er mesti hagnaður bankans á einum árshelmingi.
Gert er ráð fyrir mjög góðri afkomu á síðari hluta ársins þannig að heildarhagnaður ársins verði meiri en nokkru sinni fyrr. Eigið fé bankans í lok síðasta árs nam tæpum 5,7 milljörðum króna en var rúmir 3,2 milljarðar króna árið áður. Stefnt er að hröðum vexti bankans næstu árin en gerðar eru kröfur um 18% arðsemi eigin fjár á ári.
Hjá Icebank starfa um 100 manns. Bankinn er í eigu 24 sparisjóða en fjórir þeirra eiga meira en 10% hlut í bankanum ? SPRON (24,5%), Sparisjóður Hafnarfjarðar (14,7%), Sparisjóður vélstjóra (14,0%) og Sparisjóðurinn í Keflavík (11,6%).