Iðnaðarráðherra hefur falið framkvæmdanefnd um einkavæðingu að annast sölu á 16% hlut ríkisins í Baðfélagi Mývatnssveitar hf. sem á og rekur jarðböðin við Mývatn. Nafnvirði hlutarins er 20 milljónir króna segir í tilkynningu frá framkvæmdanefnd um einkavæðingu.

Ríkiskaup munu hafa umsjón með útboði á hlutnum og er ráðgert að auglýsing, þar sem óskað er tilboða í eignarhlutinn, verði birt fljótlega eftir páska.