Hlutabréfavísitölur í Evrópu breyttust almennt ekki mikið í dag. Í Frakklandi og á Norðurlöndum hækkuðu hlutabréf lítillega en í Þýskalandi og á Englandi lækkuðu þau lítillega eftir hækkun framan af degi. Bréfin í kauphöllinni í London lækkuðu þrátt fyrir lækkun stýrivaxta Englandsbanka um 25 punkta í dag.