Steinar Þór Guðgeirsson, lögfræðingur og stjórnarmaður í Vátryggingarfélagi Íslands (VÍS), hefur tilkynnt fyrirtækinu úrsögn sína úr stjórn félagsins frá og með deginum í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá VÍS, en þar eru ekki tilgreindar neinar ástæður fyrir úrsögn Steinars Þórs.

Eftir úrsögnina sitja í stjórn félagsins þau Ásta Dís Óladóttir, Bjarni Brynjólfsson, Guðrún Þorgeirsdóttir og Helga Jónsdóttir. Varamenn eru Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir og Davíð Harðarson.