Samþykktur var framboðslisti Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem lofað hefur verið að haldnar verði í ár. Listinn var samþykktur á Sel Hóteli í Mývatnssveit í gær. Efst á listanum eru þau Steingrímur J. Sigfússon, Bjarkey Olsen og Björn Valur Gíslason. Hér að neðan eru þau sem skipa sæti listans:

  1. Steingrímur Jóhann Sigfússon, alþingismaður, Gunnarsstöðum, Þistilfirði
  2. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður, Ólafsfirði
  3. Björn Valur Gíslason, stýrimaður og varaformaður VG, Akureyri
  4. Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupstað
  5. Óli Halldórsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi Norðurþings, Húsavík.
  6. Berglind Häsler, bóndi, matvælaframleiðandi og tónlistarmaður, Karlsstöðum, Djúpavogi
  7. Edward H. Huijbens, prófessor, Akureyri
  8. Hjördís Helga Seljan, grunnskólakennari, Reyðarfirði
  9. Sindri Geir Óskarsson, guðfræðingur, Þingeyjarsveit
  10. Þuríður Skarphéðinsdóttir, hjúkrunarfræðinemi, Egilsstöðum
  11. Aðalbjörn Jóhannsson, verkefnastjóri á æskulýðssviði og nemi, Norðurþingi
  12. Harpa Guðbrandsdóttir, gjaldkeri hjá Íslandspósti, Akureyri
  13. Gunnar S. Ólafsson, framhaldsskólakennari, Neskaupsstað
  14. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, Akureyri
  15. Kristján Eldjárn Hjartarson, bygginga- og búfræðingur, Tjörn, Dalvík
  16. Sif Jóhannesdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga og sveitarstjórnarfulltrúi, Húsavík
  17. Kjartan Benediktsson, smiður, Akureyri
  18. María Hjarðar, nemi, Egilsstöðum
  19. Þorsteinn Gunnarsson, sérfræðingur, Rannís og fyrrv. rektor Háskólans á Akureyri, Akureyri
  20. Kristín Sigfúsdóttir, umhverfisfræðingur og framhaldsskólakennari, Akureyri