Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hélt í dag fund með fjármálaráðherra Noregs, Kristinu Halvorsen, og nánum ráðgjafa hennar.

Á fundinum kom fram skilningur Norðmanna og vilji til að aðstoða Íslendinga fjárhagslega og rædd var sú hugmynd að Norðurlöndin taki virkan þátt í fjárhagsaðstoð við Íslendinga ásamt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Steingrímur mun sækja Norðurlandaráðsþingið í Helsinki á þriðjudag og taka þar þátt í umræðum forystumanna í Norrænum stjórnmálum.

Þetta kemur fram á heimasíðu Vinstrihreyfingarinnar, græns framboðs.