Steingrímur H. Pétursson, framkvæmdastjóri fjármála og viðskiptaþróunar Haga, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hagar greina frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Í tilkynningunni segir einnig að Steingrímur hafi ráðið sig til starfa erlendis. Hann muni hefja störf erlendis á nýju ári, en muni sinna verkefnum fyrir Haga þangað til.