Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, munu funda með æðstu stjórnendum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á morgun, föstudag, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Ráðherrarnir munu þá halda til Washington í Bandaríkjunum og sitja þar fundi með Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra AGS, og Murilo Portugal, aðstoðarframkvæmdastjóra AGS.

Tilgangurinn er að ræða samstarf íslenskra stjórnvalda við AGS og endurskoðun á efnahagsáætlun AGS, sem hefur ítrekað tafist vegna þess að Icesavemálið er enn óútkljáð. Önnur endurskoðun á áætluninni átti að fara fram um miðjan janúar.

Heimildir Viðskiptablaðsins herma að ráðherrarnir tveir muni einnig funda með völdum fulltrúum bandarískra stjórnvalda í ferðinni. Með í för verða embættismenn úr báðum ráðuneytum og frá Seðlabanka Íslands.