Steingrímur Sigurgeirsson hefur hafið störf sem sérfræðingur á sviði samskipta og kynninga hjá Capacent. Steingrímur starfaði um árabil sem blaðamaður og fréttastjóri á Morgunblaðinu og var aðstoðarmaður menntamálaráðherra 2004-2009.

Hann er BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og með MPA-gráðu í stjórnsýslu frá Harvard Kennedy School. Steingrímur er giftur Maríu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú börn.