Steiniðjan ehf. hefur keypt  S. Helgason ehf. Í tilkynningu um kaupin kemur fram að S. Helgason er stærsta steinsmiðja landsins en fyrirtækið var stofnað árið 1972.

Sparisjóðabankinn.
Sparisjóðabankinn.
© Axel Jón Fjeldsted (VB MYND/AXEL JÓN)
Sparisjóðabanki Íslands hf. auglýsti S.Helgason ehf. til sölu með auglýsingu í helstu fjölmiðlum og var söluferill opinn áhugasömum aðilum. Fjölmargir sýndu félaginu áhuga en tilboð Steiniðjunnar ehf. var hagstæðast. Í tilkynningunni er ekki gefið upp hvert kaupverðið er.

Helstu vörur S. Helgason eru borðplötur, flísar, legsteinar og ýmis sérsmíði. Félagið hefur komið að byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, húss Hæstaréttar, húss að Lækjargötu 2 og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi. S. Helgason hefur starfað á sömu kennitölu allt frá stofnun félagsins árið 1953. Félagið hefur verið í eigu SPB hf., áður Sparisjóðabanka Íslands frá því í febrúar 2010.