Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Flugleiða, hefur verið ráðinn forstjóri Húsasmiðjunar. Er gert ráð fyrir að hann hefji störf þar sem fyrst. Steinn Logi er fæddur á Höfn í Hornafirði 1. september 1959. Stúdent frá VÍ og lauk hagfræðiprófi frá Drew University í New Jersey, síðan MBA prófi við Columbia University í New York 1985.

Steinn Logi hefur unnið hjá Icelandair síðan, í New York, Frankfurt, Baltimore og á Íslandi og síðustu sjö árin verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs. Eiginkona er Anna H. Pétursdóttir og eiga þau þrjú börn.