Fimm einstaklingar skipa nú stjórn Símans í stað þriggja áður. Kristín Guðmundsdóttir, Ásta Nína Benediktsdóttir og Óskar Hauksson ganga úr stjórninni. Í staðinn skipa eftirfarandi nýja stjórn Símans:

  • Steinn Logi Björnsso, forstjóri Skipta, stjórnarformaður
  • Skúli Valberg Ólafsson, stjórnarformaður Skipta og forstjóri Exista
  • Þorvarður Sveinsson, fjárfestingastjóri hjá Exista sem einnig á sæti í stjórn Skipta
  • Ingunn Guðmundsdóttir, forstöðumaður rekstrarsviðs hjá Icelandair Cargo
  • Elín Þórunn Eiríksdóttir, sjálfstæður ráðgjafi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Símans

Steinn Logi var ráðinn forstjóri Skipta í apríl síðastliðnum. Exista er móðurfélag Skipta og undir Skiptum er Síminn, Míla, Skjárinn og fleiri félög.