Landsbankinn hagnaðist um 14,9 milljarða á fyrri hluta ársins en á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 15,5 milljörðum króna. Kostnaðarhlutfall á fyrstu sex mánuðunum var 54,9% sem er hækkun úr 42,1%. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, er sáttur við uppgjörið en segir hægt að gera betur.

VB Sjónvarp ræddi við Steinþór.