Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, var í dag kjörinn formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja á aðalfundi samtakanna. Steinþór tekur við af Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, sem hefur gengt stjórnarformennskunni undanfarin tvö ár.

Ný stjórn SFF var kjörin á aðalfundinum. Stjórnina skipa þau Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar, Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvar, Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Jakob Ásmundsson, forstjóri Straums, Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, Sigurður Atli Jónsson,  forstjóri MP banka og Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.