Steinunn Jónsdóttir / Mynd MBL
Steinunn Jónsdóttir / Mynd MBL

Arkur ehf., fjárfestingarfélag Steinunnar Jónsdóttur, hefur keypt 16.220.892 hluti í Sjóvá en þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar .

Eftir viðskiptin á félagið 80.000.000 hluti í Sjóvá eða 5,02% alls hlutafjár.

Áætla má að viðskiptin nemi um 170 milljónum króna sé miðað við gengi dagsins í dag, sem hefur staðið í kringum 10 kr. á hlut. Heildarvirði eignarhluta félagsins nemur því nú um 800 milljónum króna.