Kröfuhöfum þrotabús Glitnis var í dag greint frá tillögu nefndar að mögulegum formanni fyrir stjórnina sem taka mun við Glitni að nauðasamningi lokið. Enn er stefnt að því að ljúka samningnum fyrir árslok og segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, nauðasamningsferlið unnið með stuðningi kröfuhafa.

VB sjónvarp ræddi við Steinunni að loknum kröfuhafafundinum í dag.