Kristrún Heimisdóttir hefur vikið úr stjórn Íbúðalánasjóðs þar sem hún er að taka að sér nýtt starf sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Eygló Harðardóttir velferðarráðherra hefur skipað Steinunni Valdísi Óskarsdóttur í stjórnina í stað Kristrúnar.

Steinunn útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund 1986 og BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1992. Þá stundaði hún nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands 2006-2007.

Hún sat í borgarstjórn Reykjavíkur 1994-2007 og var borgarstjóri Reykjavíkur frá 2004 - 2006. Hún sat á Alþingi 2007 - 2010. Þá var hún varaforseti Alþingis og sat sem þingmaður á Evrópuráðsþinginu í Strassborg 2009 - 2010. Hún hefur starfað sem sérfræðingur í Innanríkisráðuneytinu frá 2011.

Í tilkynningu á vef Íbúðalánasjóðs segir að Steinunn hafi gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum, m.a. setið í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 1998-2004, þar af sem varaformaður 2002-2004. Hún sat í stjórn Lánatryggingasjóðs kvenna 1998-2004 og svo aftur 2011–2013, þá sem formaður. Hún var formaður almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins 2004-2006, sat í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2002-2007, í stjórn Landsvirkjunar 2006-2007, í stjórn Faxaflóahafna 2006-2008 og í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar 2006-2008