Stella McCartney, dóttir Bítilsins Pauls McCartney, hefur ákveðið að fara í samstarf við Disney til þess að hanna barnaföt. Fatnaðurinn mun skírskota til nýju kvikmyndarinnar Maleficent sem fjallar um Þyrnirós. Fötin verða bæði fyrir karla og konur.

Telegraph segir að leikkonan Angelina Jolie hafi átt frumkvæðið að samstarfinu, en hún bauð Stellu að heimsækja kvikmyndaverið þar sem verið var að vinna myndina. „Ég var alltaf mikill aðdáandi Disney þegar ég ólst upp. Ég horfði á allar Disneymyndir eins og flest önnur börn,“ segir Stella.

Fötin sem Stella hannar verða seld í verslunum hennar um allan heim og á netinu í apríl. Maleficent verður frumsýnd í kvikmyndahúsum þann 30. maí.