Tvær af konunum í pönkhljómsveitinni Pussy Riot segjast hafa verið handteknar í Sochi í Rússlandi. Vetrarólympíuleikarnir fara þar fram núna. Það eru þær Nadesjda Tolokonnikova og Maria Aljokhina sem voru handteknar.

„Við höfum verið handteknar og erum sakaðar um rán,“ segir Tolokonnikova á Twitter. Báðar konurnar voru látnar lausar úr fangelsi skömmu fyrir jól eftir að þær voru fangelsaðar fyrir guðlast vegna tónleika sem þær héldu í kirkju.

Það er Ritzau fréttastofan sem greinir frá þessu.