Norræna lággjaldaflugfélagið Sterling hefur ákveðið að hætta við flug til Barcelona, Nice og Parísar frá Helsinki vegna aukinnar samkeppni á svæðinu. Sterling greindi frá þessu í dag.

Félagið tilkynnti í október í fyrra að flug til 11 áfangastaða frá Helsinki myndi hefjast í mars. En vegna aukinnar samkeppni, sérstaklega frá lággjaldaflugfélögunum Blue1 og Air Berlin, hefur Sterling ákveðið að hætta við flug til ofannefndra áfangastaða.