Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á Steypustöðinni ehf., sem er í dag að fullu í eigu dótturfélags Íslandsbanka hf. að því er segir í tilkynningu.

Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum  nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 300 milljónir króna í árslok 2008. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.

Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Framangreindu skal skilað til Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka. Sölugögn verða afhent á tímabilinu 23.-27. nóvember með rafrænum hætti.

Gert er ráð fyrir að skuldbindandi tilboðum með sérstaklega tilgreindum fyrirvörum sé skilað til Íslandsbanka, Kirkjusandi, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 2. desember.

Tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.