Deloitte og Stiki hafa ritað undir samstarfssamning sem felur í sér að Deloitte mun verða umboðsaðili fyrir Risk Management Studio (RM Studio), áhættustjórnunarhugbúnað Stika á Íslandi og á heimsvísu með samstarfi við önnur aðildarfélög Deloitte.
RM Studio byggir á íslensku hugviti og hefur verið þróað hjá Stika síðan 2004. Í dag eru 65 fyrirtæki í 17 löndum að nýta hugbúnaðinn til áhættu- og gæðastjórnunar. Frekari upplýsingar um hugbúnaðinn má finna á www.riskmanagementstudio.com .
Í tilkynningu er haft eftir dr. Rey LeClerc Sveinsson, yfirmanni gagnaverndar og upplýsingaöryggis hjá Deloitte, að með samstarfinu við Stika um RM Studio sé Deloitte að auka enn frekar þjónustuframboð sitt bæði á Íslandi og erlendis. „Það hefur orðið mikil vakning hjá íslenskum fyrirtækjum varðandi mikilvægi þess að hafa upplýsingaöryggis- og gæðamál í lagi og með þessu samstarfi getum við hjá Deloitte boðið viðskiptavinum okkar upp á bestu mögulegu þjónustu á einum stað,“ segir hann.