SkjárEinn býður áhorfendum sínum ekki upp á hefðbundna dagskrá  í dag, fimmtudaginn 13. nóvember.

Frá kl. 17.00 sýnir stöðin stillimynd þar sem áhorfendur eru hvattir til að skrifa undir áskorun til menntamálaráðherra og ríkisstjórnar Íslands „um að leiðrétta ójafnt samkeppnisumhverfi einkarekinna sjónvarpsstöðva,“ eins og það er orðað í tilkynningu frá Skjánum.

„Við viljum vekja athygli á því að einkareknar sjónvarpsstöðvar geta ekki þrifist í ójafnri samkeppni við RÚV í efniskaupum og á auglýsingamarkaði og það er á ábyrgð okkar að koma fólki í skilning um hvað bíður þess ef ekki verða teknar réttar ákvarðanir í þessum efnum,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins í tilkynningunni.

„Það er engin tilviljun að við völdum fimmtudag til að fylgja þessum málstað okkar eftir.“

Þá kemur fram að um 40 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til menntamálaráðherra og ríkisstjórnar Íslands á skjárinn.is.

„Þátttakan endurspeglar skýra kröfu íslenskra sjónvarpsáhorfenda um að vita hvað sé framundan í málefnum einkarekinna sjónvarpsstöðva hér á landi,“ segir Sigríður Margrét í tilkynningunni.