Stilling hf. hefur ákveðið að loka varahlutaverslun sinni við Smiðjuveg í Kópavogi þann 1. nóvember næstkomandi sem fyrirtækið segir vera gert til að mæta breyttum þjónustukröfum. Mun félagið í staðinn efla sendingarþjónustu á varahlutum til bílaverkstæða.

Júlíus Bjarnason, framkvæmdastjóri Stillingar segir engar breytingar vera fyrirhugaðar í öðrum verslunum Stillingar í Hafnarfirði, á Selfossi og Akureyri og engum starfsmönnum verði sagt upp.

„Við fjölgum skutlum sem fara á klukkutíma fresti allan daginn með varahluti sem verkstæðin panta ýmist á netinu, í tölvupósti eða síma,“ segir Júlíus í fréttatilkynningu en með þessu móti segir hann viðskiptavinina spara sér dýrmætan tíma.

„Þetta er sama þróun og orðið hefur víða erlendis, að þjónustan færist yfir í netverslun hjá stórum vöruhúsum. Það er fljótlegra og ódýrara fyrir viðskiptavininn að fá vöruna senda en leggja á sig tilheyrandi ferðir og fyrirhöfn.“

Júlíus viðurkennir að það hljómi kannski sérkennilega að segjast ætla að bæta þjónustuna og loka útsölustað í leiðinni.

„Málið er hins vegar að stór hluti viðskiptavina verslunarinnar við Smiðjuveg hafa verið verkstæðin sem núna sækja í vaxandi mæli í sendingarþjónustuna, vegna þess að hún hentar þeim miklu betur. Þar að auki er ekki langt að fara í verslun Stillingar á Bíldshöfða fyrir þá sem vilja gera innkaupin í eigin persónu.“