Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, segir stefnt að því að ryðja úr vegi stimpilgjöldum og vörugjöldum á fyrri hluta kjörtímabilsins. Hann vonast til þess að hægt verði að leggja til afnám stimpilgjalda í fjárlögum þarnæsta árs. "Vörugjöldin eru úrelt og ósanngjörn skattheimta og samkeppnishindrandi á mörgum sviðum. Ég mun beita mér fyrir því að þau verði grisjuð all verulega," segir Björgvin ennfremur í samtali við Viðskiptablaðið.
Þessar yfirlýsingar ráðherrans eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í vor. Þar segir í kaflanum: Hvetjandi skattaumhverfi: "Kerfi óbeinna skatta, s.s. vörugjalda og virðisaukaskatts, verði endurskoðað. Stimpilgjald í fasteignaviðskiptum verði afnumið á kjörtímabilinu þegar aðstæður á fasteignamarkaði leyfa."