Stjórn kandíska frystigeymslufyrirtækisins Atlas Cold Storage mælir með því að hluthafar taki ekki kauptilboði flutningafyrirtækisins Avion Group í félagið, en íslenska félagið hefur framlengt tilboð sitt til 17. október.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Atlas Cold Storage. Stjórnin segir tilboð Avion Group ekki endurspegla virði fyrirtækisins.

Tilboð Avion Group hljóðar upp á sjö kanadíska dali fyrir hvern hlut í félaginu. Heildarvirði félagsins (e. enterprise value) er um 574 milljónir kanadrískra dala, samkvæmt tilboðinu, eða rúmlega 37 milljarðar íslenskra króna