Stjórn Bakkavarar samþykkti í dag tillögu um að auka hlutafé félagsins um 80.269.613 hluti, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Þar segir að ákvörðunin sé í samræmi við 3. gr. samþykkta félagsins, en eins og fram kom í tilkynningu þann 30. apríl síðastliðinn verður hluti kaupverðs Laurens Patisseries sem Bakkavör keypti á dögunum greiddur með hlutabréfum í fyrirtækinu.

Hluthafar áttu ekki forgangsrétti til ofangreindrar hlutafjárhækkunnar, sbr. 3. gr. samþykkta Bakkavarar. Heildarfjöldi hluta í Bakkavör eftir hækkunina verður 2.133.909.016.