Stjórn Bakkavör Group hf. hefur í dag ákveðið að auka hlutafé félagsins um 80.269.613 hluti í samræmi við 3. gr. samþykkta félagsins, en eins og fram kom í tilkynningu þann 30. apríl s.l. verður hluti kaupverðs Laurens Patisseries sem Bakkavör Group keypti á dögunum greiddur með hlutabréfum í Bakkavör Group.

Hluthafar áttu ekki forgangsrétti til ofangreindrar hlutafjárhækkunnar, sbr. 3. gr. samþykkta Bakkavör Group hf. Heildarfjöldi hluta í Bakkavör Group hf. eftir hækkunina verður 2.133.909.016.