Stjórn Bankasýslu ríkisins segir að afskipti af ákvörðun um ráðningu Páls Magnússonar sem forstjóra stofnunarinnar gera það að verkum að henni er ekki lengur stætt að sitja lengur. Stjórnin hefur sent Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra bréf og óskað eftir því að verða leyst frá störfum.
Í stjórn Bankasýslunnar sitja þau Þorsteinn Þorsteinsson rekstrarhagfræðingur, sem jafnframt er formaður, Sonja María Hreiðarsdóttir lögmaður, Steinunn Kristín Þórðardóttir rekstrarhagfræðingur og Jón Sigurðsson lögmaður.
Í tilkynningu frá stjórn Bankasýslunnar er ítrekað að sú ákvörðun að bjóða Páli starf forstjóra Bankasýslu ríkisins hafi verið byggð á hlutlægum og málefnalegum sjónarmiðum þar sem eiginleikar og hæfileikar Páls til að sinna starfinu lágu til grundvallar.
Fram kemur í tilkynningunni að níu umsóknir hafi borist þegar staða forstjóra var auglýst í ágúst. Stjórn Bankasýslunnar hafi ásamt ráðgjafa frá Capacent lagt mat á umsóknirnar. Þar hafi verið lagt til grundvallar að ferlið yrði vandað og faglegt. Stuðst hafi verið við viðurkenndar matsaðferðir og mælingar. Allir sem að ferlinu komu hafi verið sammála um að Páll væri hæfastur umsækjenda.
Ákvörðunin var tilkynnt um mánaðamótin og var hún gagnrýnd.
Þá segir í tilkynningunni að stjórn Bankasýslunnar hafi aldrei litið svo á að ákvarðanir hennar væru hafnar yfir gagnrýni. Í umræðunni hafi hins vegar verið vegið að trúverðugleika Bankasýslunnar og friður rofinn um starfsemi hennar.