Stjórn Eimskipafélags Íslands segist í tilkynningu harma villandi umræður um kaupréttaráætlun félagsins. Segir hún m.a. að kaupréttaráætlun félagsins hafi verið samþykkt á aðalfundi árið 2010 án athugasemda, en á þann fund hafi verið mættir fulltrúar hluthafa félagsins. Þar á meðal nokkurra íslenskra lífeyrissjóða. Á hluthafa- og aðalfundum félagsins síðan þá hafi ekki verið lagðar fram neinar athugasemdir við kaupréttaráætlun félagsins, hvorki af fulltrúm lífeyrissjóða né öðrum hluthöfum. Slíkt hefði verið heppilegri vettvangur til að koma á framfæri athugasemdum við áætlunina fremur en kvöldfréttatími Ríkissjónvarpsins kvöldið fyrir lokadag útboðs.

Stjórnin segir að kaupréttaráætlunin hafi að fullu verið í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög nr. 2/1995 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi þess árið 2010. Forstjóri og framkvæmdastjórar Eimskips hafi fallið einhliða frá kaupréttum sem þeir höfðu áunnið sér eftir móttöku tilboða í gær. Þeir hafi tilkynnt stjórn munnlega um ákvörðun sína kl. 18 í gærkvöldi og í kjölfarið var send út fréttatilkynning frá félaginu.

Að öðru leyti segir í tilkynningunni að kaupréttum hafi fyrst verið úthlutað í upphafi árs 2010 en til að geta nýtt kaupréttina að fullu þurftu stjórnendur að starfa hjá félaginu til ársins 2015.

„Því er óhætt að segja að þeir hafi ekki komið til á einni nóttu líkt og haldið hefur verið fram. Þar sem að gert var ráð fyrir að stjórnendur væru að vinna sér inn þessa kauprétti yfir 5 ára tímabil var horft til þess að tengja saman hagsmuni þeirra og félagsins til langs tíma.

Þegar kaupréttum var úthlutað var það alltaf gert m.v. virði félagsins á hverjum tíma án nokkurs afsláttar. Stjórnendur Eimskips höfðu áunnið sér 1,9% hlut í félaginu og miðað við útboðsgengið 208 krónur á hlut var ávinningur þess hlutar um 135 milljónir króna eftir greiðslu kaupverðs til félagsins og skatta. Sá ávinningur byggir á þeirri aukningu á virði félagsins sem orðið hefur síðastliðin 3 ár. Kaupréttirnir skiptust á sex stjórnendur,“ segir í tilkynningunni.