Stjórn Eimskips ætlar að leggja til við hluthafa sína á aðalfundi félagsins að heimilt verði að gefa út hlutafé í erlendum gjaldmiðli. Aðalfundur félagsins verður haldinn 18.mars næstkomandi, en breytingartillaga stjórnarinnar er svohljóðandi:
„Stjórn félagsins hefur heimild til að ákveða að hlutafé félagsins verði gefið út í erlendum gjaldmiðli í stað íslenskra króna, telji stjórnin slíkt fýsilegt, sbr. heimild í 1. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Skal við umreiknun hlutafjárins fara að ákvæðum laga um ársreikninga nr. 3/2006, sbr. 5. mgr. 1. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Skal stjórn jafnframt heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins sem leiða af útgáfunni, þ.á m. breyta fjárhæðum þeim sem fram koma í 1. mgr. 3. gr. samþykkta félagsins og varða breytinguna.“