Stjórn HB Granda hefur samþykkt kaup félagsins á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Ögurvík fyrir 12,3 milljarða króna samkvæmt tilkynningu frá félaginu.

Ögurvík er í eigu Brims, sem er stærsti hluthafi HB Granda með ríflega þriðjungshlut. Í tilkynningunni kemur fram að kaupverðið byggi á niðurstöðum tveggja óháðra matsmanna. Þá vinni Deloitte á Íslandi skýrslu um kaupin samkvæmt lögum um viðskipti tengdra aðila sem kynnt verði hluthöfum en leggja á kaupin fyrir hluthafafund til samþykktar. Viðskiptin eru einnig háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fjármagna á kaupin með eigin fé og lánsfjármagni.

Í tilkynningu stjórnar kemur jafnframt fram að með kaupunum á Ögurvík breikki grunnur allrar starfsemi HB Granda. „Fiskveiðikvóti félagsins eykst, einkum í verðmætum tegundum eins og þorski en botnfiskkvótinn fer úr 48 þúsund tonnum í 56 þúsund tonn. Tækifæri skapast á aukinni sérhæfingu í veiðum og í landvinnslu. Vinnsla á verðmætari afurðum í landi mun aukast. Þá verður nýting á hráefni og vinnsla á öðrum afurðum hagfelldari og staða félagsins á mörkuðum styrkist með aukinni framleiðslu ekki hvað síst í Asíu þar sem eftirspurn eykst stöðugt. Verð á afurðum félagsins getur því hækkað og arðsemin af aflaheimildum og fjárfestingum í vinnslu eykst af sama skapi. Kaupin á Ögurvík eru í samræmi við áherslur félagins á veiðar og vinnslu tegunda með hærri framlegð og að sækja á arðbæra og vaxandi markaði,“ segir í tilkynningunni.

Ögurvík ehf. er útgerðarfélag sem gerir út Vigra RE 71 sem er 2.157 tonna frystitogari smíðaður árið 1992. Aflaheimildir félagsins á fiskveiðiárinu sem hófst 1. september 2018 eru 7.680 tonn af botnfiski og 1.663 tonn af makríl miðað við úthlutun árið 2018. Ögurvík hefur rekið útgerð frá Reykjavík í meira en hálfa öld, en Vigri RE er eitt kvótahæsta fiskiskip íslenska flotans. Rekstrartekjur félagsins á árinu 2017 voru 2.197 milljónir króna , 2.160 milljónir kr. árið 2016 og 2.193 milljónir kr. árið 2015. EBITDA félagsins var 348 milljónir króna árið 2017, 366 milljónir kr. árið 2016 og 707 milljónir kr. árið 2015.